Tónlistarstíll 20. aldarinnar var í fyrstu mjög áþekkur rómantíska stílnum. Eftir því sem líður á öldina ber sífellt meira á breytingum sem hafa fylgt tónlist fram á okkar daga, þ.e. 21. öldina og nútímatónlist. Á 20. öldinni var mikil breyting á því hvernig fólk gat nálgast tónlist. Uppfinning plötuspilarans gerði það verkum að einfaldara var að nálgast tónlist þar sem áður fyrr var hún einungis spiluð á tónleikum og var aðgangseyrir á slíkt í hærra lagi. Tæknibreytingin hafði vissulega áhrif á 20. öldina en þó ekki almennilega fyrr en á síðari hluta hennar.
Tímabilið hófst með fyrri heimstyrjöldinni og hafði það mikil áhrif á það hvernig skáldin tjáðu sig. Klassísk tónlist varð tilfinningaríkari og tónlistarstefnan breyttist. Áhrifin sem heimsstyrjaldirnar höfðu á klassíska tónlist voru mikil og fleiri tónlistarstílar litu dagsins ljós. Djassinn byrjaði að verða vinsælli og vinsældir klassískrar tónlistar dvínuðu. Fólk vildi heyra nýja tónlist og tæknibyltingin hjálpaði mikið með framleiðslu nýrrar tónlistar sem verið var að uppgötva. Þó voru mörg mjög góð tónskáld starfandi á 20. öldinni, meðal annars Edgar Varése, Arnold Schoenberg, Sergei Prokofiev, Igor Stravinsky, Edward Elgar og Claude Debussy.
Vorblótið - Fyrsti kafli eftir Igor Stravinsky