Blústónlist rekur rætur sínar til Bandaríkjamanna sem voru af afrísku bergi brotnir og átti hún upphaf sitt á 19. og 20. öld. Á 7. áratugi síðustu aldar var blúsinn og einfalt form hans ein vinsælasta gerð tónlistar í Bandaríkjunum og hafði hve mest áhrif á tónsmíðar komandi tónlistarstíla.
Lítið sem ekkert er um heimildir af uppruna blússins en vitað er að hann hóf þróun sína eftir bandarísku borgarastyrjöldina 1861-65. Þá minnti blús helst á þjóðlög, gospeltónlist og hvað mest tónlist hvítra.
Árið 1912 var lag frumflutt að nafni Memphis Blues í útsetningu trompetleikarans W. C. Handy. Eftir það komu út mörg lög sem innihéldu orðið ,,blues“ og tónlistarstíllinn varð æ vinsælli. Þó voru fyrstu blúsupptökurnar ekki gerðar fyrr en á þriðja áratugnum af konum eins og Ma Rainey, Bessie Smith og Mamie Smith. Allar áttu voru þær uppi snemma á síðustu öld og áttu það sameiginlegt að vera þeldökkar og búa við mikla fordóma og kúgun frá hinum hvítu. Þegar upptökur þeirra komu út hófst ákveðið blúsæði sem tók nokkurn veginn yfir djassinn, sem naut þá mikilla vinsælda í Bandaríkjunum.
Blúsinn þróaðist mest í nokkrum fylkjum, Georgíu, Texas, Norður- og Suður Karólínu og Mississippi. Þar sem mestmegnis blökkumenn sömdu og sungu þessa tónlist var hún oft kölluð ,,negratónlist“ og var einungis vinsæl meðal þess minnihluta. Blúsinn þróaðist í sitthvorar áttir eftir fylkjum. Georgísku og karólínsku blúsarnir voru þekktir fyrir skýrleika, taktfestu og meiri melódíur en blúsarnir frá Texas sem innihéldu háar raddir og gítarplokkanir. Deltablúsarnir frá Mississippi voru ákafasta form blússins og þekktir fyrir slagverk, gítar og oft á tíðum tal í stað söngs.
Upprunalega blúsformið er tólf taktar, fjórir í hverri línu. Allir taktarnir nema fimmti, sjötti, níundi og tíundi hafa sama hljóm. Fimmti og sjötti eru ferund hærri en sá upprunalegi en níundi og tíundi eru fimmund hærri. Þetta var einfalt form sem margir er kunnu sitthvað á gítar gátu smíðað út frá.
Báðar heimsstyrjaldirnar og kreppan mikla urðu til þess að blús dreifðist um allan heim og náði hámarki auk þess að frægustu blús söngvarar urðu til. Meðal annars B.B. King, Muddy Waters, Buddy Guy og Robert Johnson.
Blús hafði mikil áhrif á bæði djass og rokk, tónlistarstíla sem frægir voru á svipuðum tíma. Hinir víðfrægu Louis Armstrong, Jelly Roll Morton, Elvis Presley og Eric Clapton notuðu oft djassþætti í tónlist sinni meðal annarra tónlistarmanna, bæði djass og rokk.
The thrill is gone- B.B. King