Diskó (Komið af franska orðinu ,,discotheque“) var vinsæll tónlistarstíll sem á uppruna sinn í norðausturhluta Bandaríkjanna í byrjum áttunda áratugs síðustu aldar. Tónlistin er áþekk fönki, poppi og salsa, en einnig er hún innblásin af plötusnúðum þar sem hún er mestmegnis gerð rafrænt.
Í upphafi var diskó einungis spilað á lokuðum börum og veislum sem fáir komust inn í. Plötusnúðarnir byrjuðu að blanda saman tónlist og breyta henni og þannig varð þessi tónlistarstíll til.
LaDonna Adrian Gaines eða Donna Summer eins og hún var kölluð, var ein frægasta söngkona diskótímabilsins. Frægustu lög hennar voru ,,Love to Love You Baby“, ,,I Feel Love“ og ,,Last Dance“. Donna Summer var oft þekkt sem ,,diskódrottningin“.
Diskótónlistin varð vinsælust á áttunda áratugnum þegar diskólögin byrjuðu að komast á toppinn á Billboard Hot 100. Lagið ,,Love Train“ með O’Jays var fyrsta lagið til að komast á topp Billboard Hot 100. Í byrjun níunda áratugarins var diskótónlist orðin mjög vinsæl um allan heim og listamenn sem ekki voru aðallega diskóleikarar sömdu nokkur diskólög.
Þrátt fyrir að diskó hafði minni áhrif í Bandaríkjunum á tíunda áratugnum, skilaði það þó miklum áhrifum til minnihlutahópa í samfélaginu og gáfu hommum og lituðum kjark til að komast langt í tónlistarbransanum.
I Feel Love- Donna Summer