Hipphopp var kom fram seint á áttunda áratug síðustu aldar meðal afrísk-bandarískra ungmenna sem bjuggu í South Bronx hverfi New York borgar. Í hverfinu bjuggu mestmegnis fátækir innflytjendur sem kölluðu hverfið sitt gjarnan ,,gettó“. Hipphoppið er ekki einungis gerð rapps heldur menningarathafnir sem greinast í fjögur meginatriði, að ,,deejaya“, að rappa (eða MCa), að graffa á veggi og að b-boya, sem er dansstíll skyldur break-dansi. Seinna bættist fimmta meginatriði hipphoppsins við, sem er að ,,beatboxa“, oft kallað munnlegt slagverk. Graffítí-ið og break-dansinn voru þeir þættir hipphoppsins sem vöktu mesta athygli almennings en entust jafnframt styst.
Margir unglingar voru atvinnulausir svo þeir unnu sem plötusnúðar, að breyta og blanda upptökum af lögum til að skapa nýtt hljóð.
DJ Kool Herc (Clive Campbell) var fyrsti DJ-inn og er oft kallaður faðir hipphoppsins. Campbell flutti frá Jamaíku í Bronx hverfi New York borgar árið 1967. Hann gerði hip hop vinsælt með því að DJ-a diskólög í teitum og á börum frá árinu 1973. Frægðir hans jukust þó töluvert árið 1975. Um það leyti hófst fyrri hipphopp bylgjan, ,,OldSchool“.
Hipphopp tónlist var oft spiluð ,,live“ í samkvæmum, eða lifandi flutningur. Árið 1979 var fyrsta hipphopp lagið ,,Rapper's Delight“ með The Sugarhill Gang gefið út. Það kom almenningi á óvart að lagið var á toppi vinsældarlista um allan heim.
Um miðjan níunda áratug hófst seinni hipphopp bylgjan ,,NewSchool“ Tríóið Run- D.M.C gáfu út plötu samnefnda hljómsveitinni árið 1984. Þeir voru þekktir fyrir að blanda rappi við hardrokk. Frægustu lög Run- D.M. C. voru ,,Walk This Way“ og ,,It’s tricky“. LL Cool J var einnig frumkvöðull NewSchool tímabilsins. Hann gaf út sína fyrstu plötu, ,,Radio“, árið 1985. Síðasta plata hans, Exit 13, kom út árið 2008.
Árið 1989 kom kalifornískt rapp út í fyrsta skipti. Hljómsveitin N.W.A gaf út plötu að nafni ,,Straight Outta Compton“ Fyrrum meðlimir þeirrar hljómsveitar, Ice Cube, Eazy E og Dr. Dre leiddu vesturstrandarrapp það sem eftir lifði 20. aldar ásamt fleirum, t.d. Jay-Z, Scarface og 2Pac.
Hipphoppið var alltaf skylt rappi en eftir að 21. öldin gekk í garð teljast stílarnir hafa þróast í sömu átt og fléttast saman svo erfiðara er að greina á milli hvort tónlistarmenn og lög í dag séu hipphopp eða rapp.
Let Me Clear My Throat- DJ Kool Herc

Express Yourself- N.W.A