Klassíska tímabilið í tónlistarsögunni stóð yfir frá 1750 til 1830, mitt á milli barokks og rómantíska tímabilsins. Klassísk tónlist er léttari en barokktónlist og er auk þess minna um skraut. Margir telja að barokktímabilinu hafi lokið árið 1750 þegar Bach dó en tónlistarstefnan var einnig að breytast, samhliða þróun annarra listgreina. Á miðri 18. öld urðu straumhvörf í evrópskum listum, nýjar áherslur í byggingarlist, bókmenntum, myndlist og tónlist komu til sögunnar, klassíska tímabilið var hafið en tíma barokksins var lokið.
Frægustu tónskáld klassíska tímabilsins voru Haydn, Mozart og Beethoven en Mozart er líklega þekktastur þeirra. Hann byrjaði mjög snemma að semja og kláraði sitt fyrsta verk aðeins þriggja ára gamall. Hann lifði aðeins til 35 ára aldurs en var þrátt fyrir það afkastamikill og liggja um 300 verk eftir hann, og er Mozart í dag eitt af virtustu tónskáldum allra tíma. Beethoven er ekki síður þekktur en hann var uppi á mörkum klassíkur og rómantíkur, var brautryðjandi í þróun tónlistar á þessum kaflaskilum tónlistarsögunnar.
Sinfónía nr. 40 í G eftir Wolfgang Amadeuz Mozart

Vorkaflinn úr Árstíðum eftir Antonio Vivaldi