Orðið rapp var fyrst notað í kringum 1960 af lituðum íbúum Bandaríkjanna. Þau skilgreindu orðið rapp sem samtal eða samræður. Í grundvallaratriðum er rapp að tala á meðan tónlist er í gangi.
Rapp og hipphopp eru tveir stílar sem eru mjög áþekkir. Eitt af fimm meginatriðum hipphopps er að rappa, svo rapp sem stakur tónlistarstíll kemur upprunalega frá hipphoppi. DJ Kool Herc, hipphopp kóngurinn var mikið að ,,deejayja“ í teitum með systur sinni. Eftir smá tíma fattaði Herc að það vantaði einhvern til að tala í hljóðnemann, og kynna hann inná sviðið. Hann fékk vin sinn Coke La Rock til að vera með honum. Coke La Rock byrjaði að rappa með lögunum og varð fyrsti rapparinn. Þannig varð rapp að tónlistarstíl, og síðan þá hafa margir þekktustu tónlistarmenn uppgötvast, t.d. 50cent, Tupac, Eminem, Snoop Dogg, Jay-Z, Kendrick Lamar og Kanye West svo eitthvað sé nefnt.
Rappið á Íslandi þróaðist frekar hægt. Árið 1996 náði íslenska hljómsveitin Qurashi töluverðum vinsældum í rappheiminum erlendis en þó voru öll lög þeirra á ensku. Árið 2000 vann rapphljómsveitin 110 Rottweiler hundar (seinna XXX Rottweiler hundar) söngvakeppnina músíktilraunir. Þeir voru fyrsta íslenska rapphljómsveitin sem rappaði á móðurmálinu. Áður taldist það hallærislegt og ómögulegt en eftir lög þeirra breyttist viðhorf fólks á íslensku rappi.
Heimilt er að skipta íslensku rappi í tvær bylgjur eftir vinsældum. Fyrsta rappbylgjan hófst um 2003 og með henni komu fullt af hópum eins og Afkvæmi guðanna, Forgotten Lores, Sesar A, Skytturnar, Bæjarins bestu, Bent & 7Berg og Móri. Það var mest allt hópar og ekki voru konur að rappa.
Seinni bylgjan hófst árið 2015, um það leyti þegar platan ,,Gísli Pálmi“ eftir samnefndum rappara kom út. Árið 2015 hófu margir rapparar feril sinn sem enn eru að semja tónlist. Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur, Reykjavíkurdætur og Sturla Atlas auk annarra. Enn þann dag í dag er verið að uppgötva nýja rappara um leið og tónlistarstíllinn þróast stöðugt. Meðal þeirra eru Aron Can, Herra Hnetusmjör, Logi Pedro, Joey Christ og fleiri.
Sing For The Moment- Eminem