Rómantíska tímabilið hófst um 1810 og varði út 19. öldina. Klassíska tímabilið reis hæst með tónsmíðum Mozart en því næst tók Beethoven við keflinu og leiddi tónlistarþróun til rómantíkur. Listir tóku örum breytingum samhliða byltingum 19. aldar, sem voru jafnt hugmyndafræðilegs og raunverulegs eðlis. Hin listræna tjáning breyttist með fram því að nýjar hugmyndir hófu innreið sína í evrópska menningu, meðal þessara breytinga ber helst að merkja aukið frelsi tónskálda og flytjenda, minni áhersla var lögð á formið en þeim mun meira máli skipti tilfinning hvers og eins. Tónlistin varð síður reglubundin og formföst en þess í stað fjölbreyttari, tilfinningaríkari og ástríðufyllri.
Tunglskinssónatan eftir Ludwig Van Beethoven
Tunglskinssónatan eftir Ludwig Van Beethoven
,,Drykkjuvísa" Eftir Giuseppe Verdi
Brot úr Hnotubrjótnum eftir Pyotr Ilyich Tchaikovsky