Rokk
Rokk átti upptök sín í lok 5. áratugarins. Á þeim tíma voru country-tónlist og blús vinsælir stílar. Þegar meira slagverki og rafmagnsgítar var bætt við þá tónlist, varð til rokk. Chuck Berry er sagður vera frumkvöðull rokksins. Hann hóf feril sinn þegar hann gaf út lagið ,,Johnny B. Goode“ árið 1958. Þaðan af fetuðu Rolling Stones í fótspor hans sem hljómsveit sem gaf út lög og plötur. Frábrugðið annarri tónlist, innihélt rokkið texta sem fjölluðu um kynlíf og uppreisnargjarna hegðun. Textarnir urðu að ágreiningsefni vegna þess og margir neituðu að hlusta af siðferðilegum ástæðum, en þó jukust vinsældir rokksins svo ört að það gilti einu.
Í upphafi 7. áratugarins kom ein frægasta hljómsveit sögunnar fram á sjónarsviðið, popprokkhljómsveitin Bítlarnir. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu árið 1963 og hét hún Please Please Me. Sama ár gáfu þeir út plötuna With The Beatles og ári síðar plötuna A Hard Day’s Night. Þeir urðu sífellt vinsælli og gáfu út 1-2 plötur á hverju ári allt að árinu 1970, þegar hljómsveitin hætti störfum. Meðal þekktustu platna sem þeir gáfu út á ferlinum voru Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band (1967), Revolver (1966) og Abbey Road (1969).
Á 8. áratugnum hóf hljómsveitin Led Zeppelin nýjan stíl rokks, hard rock eða heavy metal. Þekktustu plötur þeirra eru Led Zeppelin IV (1971), Physical Graffiti (1975) og Led Zeppelin II (1969) Á sama tíma var hljómsveitin Pink Floyd að gefa út plötur sem innihéldu sama þema allan tímann og voru gerðar til að hlusta helst á í einni setu, svokallaðar konseptplötur. Þaðan varð til pönk, sem minnti á hard rock en hár gítar, hár söngur og andstyggileg hegðun einkenndu pönkið.
Á níunda áratugnum fór áhugi fyrir rokki að dvína og þann áratug urðu margir minni rokkstílar vinsælir, t.d. post punk, jaðarrokk og indí. En árið 1991 gaf gruggrokkhljómsveitin Nirvana út lagið Nevermind, og með því er sagt að rokkið hafi verið endurlífgað. Frægustu plötur Nirvana voru Nevermind (1991), In Utero (1993) og Unplugged in New York (1994). Sama ár og Unplugged in NY kom út stytti Kurt Cobain, söngvari sveitarinnar, sér aldur, sem varð til þess að vinsældir jaðarrokks minnkuðu og aðrir stílar rokksins tóku við. Þar á meðal rap-rock, emo, screamo og fleira. Líkt og í djassinum, eru nýir rokkstílar enn þann dag í dag að líta dagsins ljós.
Strawberry Fields forever- The Beatles

Stairway to heaven- Led Zeppelin
Smells Like Teen Spirit- Nirvana