Teknótónlist átti upphaf sitt árið 1980 í Detroit í Michigan fylki en var orðin heimsþekkt um áratugi síðar. Tónlistin lýsti sér sem rafrænni danstónlist og blöndu af fönki, tölvutónlist og djassi.
Teknótónlist var mjög vinsæl í Evrópu, Bretlandi, Belgíu og Þýskalandi. Vinsældirnar jukust örar í Evrópu en í Bandaríkjunum vegna þess hve oft hún var spiluð á böllum í Bretlandi sem hétu sérstöku nafni, ,,rave“. Rave er gerð balls sem vinsælt er meðal ungs fólks og inniheldur plötusnúð og taktfasta tónlist. Slík böll voru gullið tækifæri fyrir teknótónlistarmenn að deila tónlist sinni sem fljótt náði vinsældum ungs fólks.
Plötusnúðarnir Juan Atkins, Kevin Saunderson og Derrick May eða "Belleville Three" gáfu teknótónlistinni nafnið teknó því þeir fengu innblástur frá hljómsveitinni Kraftwerk og tónlistarmanninum Alvin Toffler’s sem spiluðu tónlist sem var svipuð þeirra.
Daft Punk og the Prodigy eru vinsælar teknóhljómsveitir. Daft Punk var stofnað árið 1993 og fyrsta plata þeirra var Homework, hún kom út árið 1997. Á plötunni var lagið Around the world, með því lagi kynntu þeir fyrir fólki þennan nýja tónlistarstíl.
The Prodigy var stofnuð árið 1990 en varð vinsæl um 1992. "What Evil Lurks" var fyrsta lagið þeirra og var gefið út árið 1991. En vinsælustu lög þeirra eru “Firestarter” og “Breath”. Þriðja platan þeirra The Fat of the Land sem var gefin út árið 1997 og var seld í 10 milljónum eintaka um allan heim. Platan var líka tilnefnd sem jaðarrokkplata ársins á Grammy verðlaununum árið 1998.
Firestarter- The Prodigy