Barokk er tónlistartímabil sem stóð yfir árin 1600-1750. Áhrifa barokktímabilsins gætti þó víðar en eingöngu í tónlist, til dæmis í myndlist og arkítektúr, og einkennist stefnan af miklu skrauti og smáatriðum. Orðið barokk er komið úr portúgölsku (barrocco). Hugtakið var notað á 17. og 18. öldinni í neikvæðri merkingu um tónlist sem þótti ofhlaðin og það var ekki fyrr en á 20. öldinni sem farið var að nota barokk hugtakið yfir heilt tímabil í tónlistarsögunni. Tímabilinu er gjarnan skipt í þrjú tímabil, frumbarokk, miðbarokk og síðbarokk. Helstu tónskáld barokktímabilsins voru Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Händel, Antonio Vivaldi og Arcangelo Corelli.
Það sem veitti listamönnum og skáldum innblástur á barokktímabilinu var meðal annars kaþólska kirkjan og hafði hún sér í lagi áhrif í upphafi barokktímabilsins. Stjórnmál höfðu einnig áhrif á þróunina en frönsku og spænsku konungsríkin höfðu mikið með það að gera hvernig barokklistamenn tjáðu sig.
Barokk tónlistarstíllinn er mjög nákvæmur og reglufastur. Barokktónlist hefur þróast mjög mikið með árunum vegna fólks sem sérhæfir sig í að spila eins og gert var á barokktímanum og þess vegna hafa margir sterkar skoðanir á því hvernig barokktónlist á að vera spiluð. Johann Sebastian Bach er frægasta tónskáld barokktímabilsins og í raun allrar vestrænnar tónlistar. Tónlist hans er hafði mikil áhrif á næstu tónlistartímabil í tónlistarsögunni og er enn spiluð í dag.
,,Air on the G string " Eftir Johann Sebastian Bach